Monday 1 July 2013

Humarhátíð

Góð vinkona okkar úr háskólanum býr á Höfn í Hornafirði og var humarhátíð haldin þar um helgina ásamt því hún fagnaði 21 árs afmæli sínu. Leið okkar lá því alla leið austur á Höfn á föstudaginn, leiðin var löng en svo sannarlega þess virði. Mikið sem við eigum fallegt land. 
Það var frábært að verja helginni í dásamlegu veðri og í góðum félagsskap. Það sem stóð upp úr var klárlega laugardagskvöldið, haldin var meiriháttar humarveisla þar sem setið var úti í garði langt fram eftir og endaði kvöldið svo á balli með Eyþóri Inga.


 Yndisleg helgi að baki

Katla og Þórhildur

No comments:

Post a Comment