Showing posts with label Outfit. Show all posts
Showing posts with label Outfit. Show all posts

Tuesday, 23 July 2013

Innblástur

Inspiration of the day. Eigið þið góðan sólardag! x


x Fanney og Þórhildur

Monday, 22 July 2013

Dress

Við fórum í kveðjupartý til góðrar vinkonu á laugardaginn. Ég hef fengið nokkrar spurningar út í dressið sem ég klæddist eftir að ég postaði því á Instagram. Ég ákvað að skella nokkrum myndum hingað inn. Gott kvöld en tilefnið ekki alveg jafn gott. Kveðjustundir eru aldrei skemmtilegar.

Bolur: Zara
Pleðurbuxur: H&M
Skór: 67 úr GS skóm
*****************************************
Þessi vinkona heldur af landi brott á morgun og heldur út í nýtt ævintýri.
Vinkonur
x Fanney

Wednesday, 17 July 2013

DIY Dip Dye skyrta

Okkur hefur lengi langað að prófa að aflita flíkur með klór. Við fundum til ljósbleika skyrtu úr Monki af Fanney. Við notuðum Dip Dye aðferðina.

Skyrtan fyrir
Við spreyjuðum klórnum á skyrtuna, okkur fannst það öruggara. Einnig er hægt að dýfa henni ofan í klór í bala.
Við létum klórinn liggja í skyrtunni í um 30 mínútur og skoluðum svo úr og settum beint í þvottavél. Útkoman var frekar gul í fyrstu en lagaðist til muna eftir að skyrtan kom úr þvottavélinni.
Hér er skyrtan tilbúin, litabreytingin sést því miður ekki nægilega vel í dagsbirtunni. Hún er aðeins augljósari en sýnist á myndinni.
 x Fanney, Katla og Þórhildur

Fatamarkaður

Við ætlum að halda fatamarkað á Garðatorgi fimmtudaginn 25. júlí þar sem við ásamt fleirum munum selja af okkur spjarirnar. Þetta er einnig lokahátíð Skapandi Sumarstarfa svo nóg verður um að vera og hvetjum við alla til að mæta.




x Fanney, Þórhildur og Katla

Tuesday, 9 July 2013

Dagsins dress

Loksins skín sólin, við fögnum því á meðan við getum. 


Ég keypti þessa peysu í Spúútnik á útsölum fyrir helgi. Ég er ótrúlega ánægð með hana og sé mikið notagildi í henni. Ég er ekki gjörn á að finna fallegar flíkur á góðu útsöluverði en þarna var sannarlega undantekning. Úr 8000 kr. í 4000 kr. Gjöf en ekki gjald. Ég var í gallabuxum úr American Apparel við og í skóm frá 67 úr Gs skóm. 

Njótið sólarinnar á meðan þið getið. 
X Fanney, Þórhildur og Katla.

Monday, 8 July 2013

Helgin

Á föstudagskvöldið var löngu planaður vinkonu hittingur með nokkrum vel völdum. Dagskráin byrjaði um fjögur þar sem við skáluðum í keilu, fórum svo og bökuðum pizzu og áttum gott kvöld saman. 
Pússluðum saman smá myndasería frá kvöldinu.


Mjög gott kvöld. Þökkum Þórhildi kærlega fyrir að vera góður myndatökumaður! ;)

x Fanney, Þórhildur og Katla.